Íslenska sprotafyrirtækið Prescriby, sem þróar hugbúnaðarlausn til að veita öruggari meðferðir uppáskrifaðra ópíóíða og annarra sterkra lyfja, lauk á dögunum 300 milljóna króna fjármögnunarlotu sem Crowberry Capital leiddi.

Auk Crowberry tóku sjóðir og einstaklingar frá Íslandi, Danmörku og Kanada þátt í fjárfestingunni, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Prescriby hyggst nýta fjármögnunina við áframhaldandi hugbúnaðarþróun auk þess að styðja við markaðsstarf í Norður-Ameríku.

„Vandamál ávanabindandi lyfja er gríðarstórt. Það sem vakti áhuga okkar á Prescriby er sú fyrirbyggjandi nálgun sem lausnin byggir á. Þar er lögð áhersla á að vera til staðar þegar fólk byrjar að nota lyf sem geta reynst ávanabindandi svo hægt sé að koma í veg fyrir að sjúklingar ánetjist slíkum lyfjum. Svo virðist sem fáir samkeppnisaðilar séu að leggja áherslu á þessa nálgun,” er haft eftir Heklu Arnardóttur, einum stofnenda Crowberry Capital.

Fyrirbyggjandi nálgun

Hugsjónin að baki Prescriby snýr að fyrirbyggjandi nálgun frá fyrstu uppáskrift til að koma í veg fyrir ávanabindingu og fíkn. Forsvarsmenn Prescriby segja kerfið sem félagið hefur þróað gera heilbrigðisstarfsfólki kleift að bjóða skjólstæðingum upp á örugga og persónusniðna eftirfylgd frá fyrstu uppáskrift auk þess að veita niðurtröppunarþjónustu til þeirra sem notast hafa við lyfin til langs tíma.

„Stórt tækifæri liggur í snemmbúnum íhlutunum og ábyrgari notkun lyfjanna til að fækka þeim sem þróa með sér ávana og fíkn, en hingað til hefur áhersla á heimsvísu mestmegnis verið lögð á fíknimeðferðir sem hafa færst mikið í aukana á síðastliðnum árum.“

Innleiðing hafin í Kanada og viðræður í Bandaríkjunum og Danmörku

Prescriby kerfið er þegar komið í notkun á Íslandi og nýverið hófst samstarfsverkefni með heilbrigðisráðuneytinu varðandi innleiðingu og útbreiðslu kerfisins á landsvísu í apótekum og heilsugæslum.

Unnið er að innleiðingu vörunnar hjá stóru heilbrigðiskerfi í Kanada og nú þegar eru hafnar viðræður um innleiðingu kerfisins á völdum stöðum í Bandaríkjunum auk rannsóknarsamstarfs með Háskólasjúkrahúsinu í Kaupmannahöfn

„Kerfið byggir á íslensku hugviti og er fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Með innleiðingu Prescriby erum við að tryggja skjólstæðingum sem þurfa sterk verkjalyf og önnur ávanabindandi lyf öruggustu meðferð sem fyrirfinnst,“ segir Kjartan Þórsson læknir, framkvæmdastjóri og einn stofnanda Prescriby.

„Markmiðið er skýrt, við höfum þróað nýjan og betri meðferðarstaðal með notkun Prescriby og við stefnum að því að kerfið verði partur af grunnþjónustu þegar meðferð slíkra lyfja er beitt. Heilbrigðisstarfsfólki og almenningi hefur þótt erfitt að horfa upp á stöðuna eins og hún hefur verið hingað til, vitandi að við höfum tækni og hugvit sem getur hjálpað við fyrirbyggingu á þróun fíknar.“

Auk Kjartans eru stofnendur Prescriby þeir Jóhannes Ingi Torfason tæknistjóri, Kevin Oram rekstrarstjóri. Lynn Bromley, fyrrverandi fylkisþingmaður fyrir Maine í Bandaríkjunum, er stjórnarformaður sprotafyrirtækisins.