Sölvi Blöndal, sem margir muna eftir úr hljómsveit inni Quarashi, hefur hafið störf hjá verðbréfafyrirtækinu Gamma. Sölvi hefur frá byrjun árs haft doktorsstöðu við Háskólann í Stokkhólmi sem fjármögnuð er af Handelsbanken og Sveriges Riksbank og hefur hann haft rannsóknir á fjármála og fasteignabólum í Skandinavíu sem viðfangsefni.
Áður starfaði Sölvi hjá greiningardeild Kaupþings þar sem hann sá um greiningu á íbúðar og atvinnuhúsnæði í Reykjavík.