Tap Wow Air á síðasta ári nam 22 milljónum Bandaríkjadala, eða sem samsvarar um 2,4 milljörðum íslenskra króna. Það er viðsnúningur um 57,5 milljónir dala, eða sem samsvarar um 6,2 milljörðum íslenskra króna frá árinu 2017.

Tekjur WOW air ehf. árið 2017 námu 486 milljónum Bandaríkjadala sem er 58% aukning miðað við árið á undan. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsgjöld og tekjuskatt (EBITDA) var 4 milljónir Bandaríkjadala samanborið við 46 milljónir Bandaríkjadala árið 2016.

Rekstrartap (EBIT) félagsins árið 2017 var 13,5 milljónir Bandaríkjadala samanborið við 30 milljóna Bandaríkjadala hagnað árið 2016. Tap ársins 2017 eftir tekjuskatt var 22 milljónir Bandaríkjadala miðað við 35,5 milljónir Bandaríkjadala hagnað árið áður. Eiginfjárhlutfall félagsins var 10.9% í árslok. Árið 2017 einkenndist af miklum vexti og fjölgaði framboðnum sætiskílómetrum um 80% og farþegum um 69%, segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

Frá stofnun WOW air árið 2011 hefur félagið vaxið mjög hratt og fjárfest hefur verið í nýjum flugvélum, nýjum áfangastöðum og þá sérstaklega í uppbyggingu innviða eins og tækniinnviðum og öflugu starfsfólki. Þessar fjárfestingar eru allar liður í því að tryggja langtímahorfur félagsins. Afkoma ársins 2017 einkenndist af auknum kostnaði vegna þessa vaxtar og fjárfestinga en á síðustu misserum hefur  verið unnið í því að styrkja grunnstoðir fyrirtækisins. Starfsmenn WOW air eru nú 1.500 en voru 1.100 á sama tíma í júlí 2017.

Horfur fyrir árið 2018 eru ágætar en félagið stendur vissulega frammi fyrir sömu áskorunum og önnur flugfélög með háu olíuverði og óvissu með gengi íslensku krónunnar. Framboð floginna sætiskílómetra var 29% meira fyrstu 6 mánuði ársins í samanburði við sömu mánuði árið 2017. Farþegum félagsins fjölgaði um 31% miðað við sama tíma í fyrra og er mest aukning í tengifarþegum sem ferðast yfir Atlantshafið og eru þeir nú um 55% af farþegum félagsins.

Á fyrstu sex mánuðum ársins var 37% vöxtur í tekjum WOW air og einingatekjur (RASK) félagins hækkuðu á sama tíma um 5% en félagið hefur ráðist í fjölmörg tekjuskapandi verkefni á síðustu misserum.

Sætanýting hefur verið mjög góð hjá WOW air það sem af er árinu eða 91%.  Félagið kynnti fyrr á árinu ný farrými; WOW Premium og Comfy sem bjóða upp á fjölbreytni í sætavali fyrir farþega. Góður vöxtur hefur verið í tekjum félagsins í fraktflutningum en WOW air eignaðist 60% hlut í Cargo Express á fyrra hluta þessa árs en á fyrstu sex mánuðum ársins var 60% vöxtur í tekjum af fraktflutningum. Cargo Express velti 1,4 milljarði íslenskra króna árið 2017 og skilaði 235 milljónum íslenskra króna í hagnað eftir skatta.

WOW air er á árinu búið að taka á móti þremur nýjum Airbus A321 flugvélum og fjórar Airbus A330neo flugvélar munu bætast við flotann í lok árs og verður þá floti félagsins 24 vélar. Það sem af er ári hafa bæst við sjö nýir flugvellir; í Detroit, Dallas, St Louis, Cleveland, Cincinnati, New York JFK og London Stansted. Áfangastaðir WOW air eru því um 40 talsins árið 2018. WOW air mun svo hefja flug til Indlands 6. desember og hefur sala flugsæta gengið vel en mikill áhugi er á þessari flugleið frá Bandaríkjunum, Kanada og Indlandi.

„WOW air hefur vaxið og fjárfest gríðarlega síðustu ár en með þessum fjárfestingum höfum við verið að að tryggja langtímahorfur félagsins. Bæði 2015 og 2016 voru mjög góð ár en afkoman fyrir árið 2017 voru vonbrigði þar sem þessi mikli vöxtur og fjárfesting reyndist dýrari en við ætluðum okkur. Ytri aðstæður hafa reynst félaginu krefjandi svo sem hækkandi olíuverð, styrking krónunnar, dýrt rekstrarumhverfi á Íslandi og mikil samkeppni á lykilmörkuðum félagsins,” segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.

Árið 2018 einkennist áfram af mikilli uppbyggingu og erum við mjög ánægð með þá markaðshlutdeild sem félagið hefur náð til og frá Íslandi og yfir Atlantshafið á mjög skömmum tíma. Þetta er öflugur grunnur til að byggja ofan á um ókomna tíð og til að styrkja stoðir félagsins enn frekar en við erum að skoða marga áhugaverða möguleika varðandi langtímafjármögnun félagsins.“