Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað tvo starfshópa sem falið er að vinna tillögur að aðgerðum til úrbóta vegna ábendinga sem fram komu í skýrslu starfshóps um umfang fjármagnstilfærslna og eignaumsýslu Íslendinga á aflandssvæðum. Jafnframt tekur verkefni starfshópanna mið af samtölum fjármála- og efnahagsráðherra við allar stofnanir skattkerfisins og stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að markvisst verði unnið gegn skattundanskotum, þar með talið í skattaskjólum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu .

Fyrri hópurinn kemur til með að kanna og greina nánar niðurstöður skýrslunnar um milliverðlagningu í utanríkisviðskiptum, þ.m.t. faktúrufölsun, með tilliti til mögulegra skattaundanskota og nýtingar skattaskjóla í því sambandi. Formaður þess hóps er Anna Borgþórsdóttir Olsen frá fjármála- og efnahagsráðuneyti. Hann skal ljúka störfum eigi síðar en 1. maí næstkomandi.

„Hinn starfshópurinn fær það verkefni að kanna og greina nánar umfang og áhrif skattundanskota og skattsvika á íslenskan þjóðarbúskap, þ.m.t. afkomu hins opinbera, ásamt því að gera tillögur að því hvernig megi minnka svarta hagkerfið. Í því samhengi þarf einnig að horfa til peningaþvættis sem oftar en ekki er fylgifiskur skattundanskota og skattsvika. Jafnframt er starfshópnum falið að skoða hvort takmarka eigi notkun reiðufjár við greiðslu launa og kaup á dýrum hlutum með hliðsjón af lögum og reglum nágrannaríkjanna. Huga skal sérstaklega að persónuverndarsjónarmiðum og kostnaði við rekjanlegar millifærslur sem og hvort einhverjum einstaklingum kunni að vera óheimilt að stunda bankaviðskipti,“ segir í tilkynningunni. Formaður seinni hópsins er Þorkell Sigurlaugsson ráðgjafi. Starfshópurinn skal ljúka störfum eigi síðar en 15. maí næstkomandi.