Aflaverðmæti íslenskra skipa í ágúst nam tæpum 12,2 milljörðum króna, en það er aukningu m 3% frá sama mánuði í fyrra. Þetta kemur fram nýjum tölum frá Hagstofu Íslands sem birtust í dag.

Aflaverðmæti botnfisks nam tæpum 5,9 milljörðum og jókst um 27,3%. Verðmæti uppsjávarafla nam rúmum 5,1 milljarði og dróst saman um 24,1% samanborið við ágúst 2014, vegur þar þyngst um 1,9 milljarða samdráttur í aflaverðmæti makríls. Aflaverðmæti flatfisks nam 822 milljónum í ágúst samanborið við 150 milljónir í ágúst 2014 sem skýrist helst af auknum grálúðuafla. Verðmæti skel- og krabbadýra jókst einnig á milli ára, nam tæpum 318 milljónum í ágúst samanborið við 275 milljónir í ágúst 2014.

Aflaverðmæti á tólf mánaða tímabili, september 2014 til ágúst 2015, jókst um 9,6% miðað við sama tímabil ári fyrr. Verðmæti afla upp úr sjó hefur aukist um 6,7% í botnfiski, 16,4% í flatfiski og 16,9% í uppsjávarafla.