Ásdís Ýr Pétursdóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Icelandair Group. Ásdís hefur yfir 15 ára reynslu á sviði samskipta- og kynningarmála, á Íslandi og á alþjóðavettvangi.

Hún hefur starfað við ráðgjöf undanfarin misseri en var sviðsstjóri samskiptasviðs hjá Actavis á Íslandi á árunum 2013 til 2017 og verkefnastjóri og síðar forstöðumaður samskiptasviðs hjá Bakkavör Group á árunum 2005 til 2011.

Áður starfaði hún við markaðs- og kynningarmál hjá Háskólanum í Reykjavík og hjá alþjóðlegu tæknifyrirtæki í Bretlandi. Ásdís er með BA próf í almannatengslum frá Mount Saint Vincent University í Kanada.