Gagarín hefur fengið grafíska hönnuðinn Atla Hilmarsson til liðs við sig. Atli lauk BA-námi frá Parsons, New York og MA-námi frá Kunstgewerbeschüle (Basel School of Design), Basel. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Eftir námið vann Atli meðal annars í nokkur ár í Þýskalandi, hjá Meta Design og KMS-Team.

Atli hefur verið stundakennari á Íslandi, í Þýskalandi og Austurríki frá árinu 1994.

Atli hefur jafnframt starfað sem hönnuður fyrir mörg heimsþekkt fyrirtæki og vörumerki auk þess sem hann rekur sína eigin stofu Vinnustofu Atla Hilmarssonar.