Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hefur skipað Brynhildi S. Björnsdóttur formann stjórnar Sjúkratrygginga Íslands. Fyrsti fundur nýs formanns með stjórn stofnunarinnar verður haldinn í dag að því er segir í frétt Velferðarráðuneytisins . Brynhildur tekur við stjórnarformennskunni af Hákoni Stefánssyni lögfræðingi, en hann tekur sæti sem aðalmaður í stjórninni. Brynhildur er framkvæmdastjóri hjá GG Verk ehf. Hún er með menntun á sviði stjórnunar og stefnumótunar.
Hún sótti nám í Harvard Business School árið 2016, lauk MSc. gráðu frá Háskóla Íslands í stjórnun og stefnumótun árið 2009 og BA frá Háskólanum á Bifröst í hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði árið 2007. Hún var stjórnarformaður Bjartrar framtíðar 2015-2016 og hefur átt sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Bjarta framtíð.
Heilbrigðisráðherra skipar stjórn Sjúkratrygginga Íslands samkvæmt lögum um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Hlutverk hennar er að staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu. Stjórnin skal hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma.
Formaður stjórnar Sjúkratrygginga Íslands skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi stofnunarinnar og gera honum viðvart ef starfsemi og þjónusta er ekki í samræmi við ákvæði laga og ef rekstur hennar og greiðslur til sjúkratryggðra eru ekki í samræmi við fjárlög.
Stjórnin er nú þannig skipuð:
- Brynhildur S. Björnsdóttir, M.Sc í stjórnun og stefnumótun, formaður
- Berglind Hallgrímsdóttir, verkfræðingur
- Hákon Stefánsson, lögfræðingur
- Guðmundur Magnússon, rekstrarverkfræðingur
- Birna Kr. Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Til vara: Jónína Guðmundsdóttir, mannauðsráðgjafi
- Til vara: Guðjón Bjarni Hálfdánarson, lögfræðingur
- Til vara: Vífill Karlsson, hagfræðingur
- Til vara: Valgerður Sveinsdóttir, lyfjafræðingur.