Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir næsta ár var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Einnig var lögð fram langtímaáætlun fyrir tímabilið 2016 til 2018.

Samkvæmt áætlun næsta árs er gert ráð fyrir að A-hluti bæjarsjóð verður rekin með 106 milljóna króna rekstrarafgangi og að samstæðan (A- og B-hluti) verði rekin með 357 milljóna króna rekstrarafgangi.

Kópavogsbær er eitt af tólf sveitarfélögum sem voru yfir 150% skuldaviðmiðinu um síðustu áramót en þá skuldaði bærinn 185% af reglulegum tekjum sínum eða ríflega 42 milljarða króna. Gangi áætlunin eftir verður skuldahlutfall bæjarins 167% um áramótin 2015/2016 og árið síðar, eða árið 2017, er gert fyrir að bærinn komist undir 150% viðmiðið.

Ármann Kr. Björnsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, segir í tilkynningu að fjárhagsáætlun Kópavogs sýni að staða bæjarins sé sterk.

„Hins vegar er ljóst, ef þessi áætlun er borin saman við þá síðustu, að þeir kjarasamningar sem hafa verið gerðir á árinu, við fjölmörg stéttarfélög, koma til með að hafa veruleg áhrif á reksturinn á næsta ári," segir Ármann Kr. „Engu að síður er rekstrarafgangur í heildina séð vel við unandi. Þá er ekkert gert ráð fyrir óreglulegum tekjum eins og sölu lóða sem að öllum líkindum mun bæta stöðuna enn frekar. Þá heldur skuldahlutfall áfram að lækka sem er mjög jákvætt.“