Hagnaður DHL Express Iceland ehf. árið 2016 nam tæpum 55 milljónum króna og jókst um 10 milljónir milli ára. Árið 2015 hagnaðist félagið um 45 milljónir króna.

Framlegðin jókst milli ára og nam 637,6 milljónum króna í fyrra samanborið við 591,4 milljónir árið 2015. Rekstrargjöld félagsins jukust einnig milli ára og námu 564,4 milljónum í fyrra samanborið við 522,5 milljónir árið áður. Eigið fé var 244 milljónir króna í lok árs 2016, en skuldir félagsins námu 310,4 milljónum króna.