Eignarhaldsfélagið Dalurinn ehf. keypt allt hlutafé Birtíngs útgáfufélags ehf í kjölfar riftunar á kaupum Pressunnar ehf. á hlutafé í Birtíngi útgáfufélagi, hinn 10. maí sl. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Birtíngur gefur út Gestgjafann, Hús og híbýli, Vikuna og Nýtt líf. Eigendur Dalsins eru Árni Harðarson, Halldór Kristmannsson, Hilmar Þór Krist­insson, Jóhann G. Jóhannsson og Róbert Wessman. Hver hluthafi á 20% hlut í félaginu. Seljendur Birtíngs eru SMD ehf. sem er í eigu Hreins Loftssonar, Prospectus ehf. sem í eigu Matthíasar Björnssonar og Karl Steinar Óskarsson. Hreinn hefur verið stjórnarformaður og aðaleigandi Birtíngs síðastliðin 8 ár, Matthías fjármálastjóri frá sama tíma og Karl Steinar framkvæmdastjóri í fimm ár. Þeir Karl Steinar og Matthías halda áfram störfum sínum hjá félaginu. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Hreinn Loftsson segir að þetta séu verulega góð tíðindi ekki aðeins fyrir fyrri hluthafa heldur einnig fyrir starfsfólk, viðskiptavini og lánardrottna fyrirtækisins: „Nýir eigendur hafa lagt félaginu til talsverða fjármuni til niðurgreiðslu skulda og þar með lýkur þeirri fjárhagslegu endurskipulagningu sem staðið hefur yfir undanfarin misseri. Ég vil nota tækifærið og óska nýjum eigendum og starfsfólki velfarnaðar og þakka um leið starfsfólkinu, viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir gott samstarf á liðnum árum.“

Gunnlaugur Árnason mun taka sæti stjórnarformanns í Birtíngi og leiða stefnumótun fyrirtækisins fyrir hönd hluthafa. Hann hefur víðtæka reynslu af fjölmiðlun, bæði hér á landi og erlendis. Gunnlaugur er eigandi bresku fjölmiðlafyrirtækjanna M2 Communications og M2 Bespoke. Hann vann um fimm ára skeið sem blaðamaður hjá Reuters-fréttastofunni í Lundúnum og var ritstjóri Viðskiptablaðsins á árunum 2005-2007.

Segir Gunnlaugur í fréttatilkynningunni: „Innan Birtíngs eru rótgróin vörumerki og nú þegar fjárhagslegri endurskipulagningu er lokið getur félagið nýtt þann góða grunn til frekari vaxtar á fjölmiðlamarkaði“.