Íslenski tölvuleikurinn Island of Winds (e. Eyja vindanna) sem framleiddur er af Parity Games hefur tryggt sér útgáfu. Útgefandinn er fyrirtækið ESDigital Games en leikurinn verður gefinn út á heimsvísu samtímis á PC, Playstation 5 og Xbox X/S á fyrsta árshluta 2025.

Parity leggur áherslu á jafnrétti og fjölbreytni en aðalpersóna leiksins er verndarvætturinn Brynhildur Hansdóttir, fjölkunnug sveitakona á miðjum aldri.

Sögusviðið er ævintýraheimur sem svipar til Íslands á 17. öld og sækir fyrirtækið innblástur til íslenskrar náttúru, þjóðsagna og þjóðhátta. Leikurinn er einspilunarleikur og fjallar um söguhetjuna Brynhildi og hvernig hún rís upp til að vernda eyjuna sína og takast á við áskoranir lífsins þó að vindar blási á móti.

„Þetta er risastór áfangi fyrir okkur og þýðir að leikurinn mun sannarlega koma út og á enn stærri markað en við sáum fyrir í upphafi. Þetta eru spennandi tímar fyrir ungt, lítið leikjafyrirtæki þar sem áhersla hefur alltaf verið lögð á framlag kvenna til tölvuleikjagerðar,“ segir María Guðmundsdóttir, forstjóri og stofnandi Parity Games.

Parity hefur hlotið styrk frá Tækniþróunarsjóði og fjármögnun frá Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Þar að auki hefur endurgreiðsla rannsóknar- og þróunarkostnaðar og segir í tilkynningu að fyrirtækið sé nú samkeppnishæft við erlend fyrirtæki. Það hafi þá vaxið jafnt og þétt frá því að vinna við leikinn hófst.

Í leiknum má finna sjö ólík landsvæði og fjöldann allan af furðuverum sem allar byggja á íslenskum þjóðsögum. Leikmenn geta galdrað og leyst þrautir, kynnst sögu eyjunnar og íbúum hennar, og leitað leiða til að berjast gegn dularfullum seiðskratta sem raskað hefur ró landsins og komið umhverfinu úr jafnvægi. Bardagakerfið er sér á parti og byggir á samkennd umfram fjandsemi, þar sem markmið leiksins er frekar að hjálpa og lækna heldur en að meiða og deyða.

Island of Winds er fyrsti leikur fyrirtækisins og segist Parity hlakka til að kynna heiminn fyrir Brynhildi og öðrum verndarvættum eyjunnar.