Lögmenn lögmannsstofunnar Lagaraka hafa stofnað fasteignasöluna Eignavangur og munu reka hana samhliða lögmannsstofunni.

Lögmenn Lagaraka eru þeir Tryggvi Agnarsson hrl., Ágúst Ólafsson hdl., Valdemar Johnsen hdl., Óskar H. Bjarnasen hdl. eru allir löggiltir fasteignasalar. Auk þeirra starfar Snorri Björn Sturluson lögfræðingur hjá Lagarökum, en hann hefur starfað við fasteignasölu frá árinu 2005.

Í tilkynningu frá fasteignasölunni segir að hún muni einbeita sér að sölu eigna fyrir einstaklinga, verktaka og fyrirtæki.