Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra veitti Sagafilm Hvatningarverðlaun jafnréttismála árið 2018 á fundi um jafnréttismál sem haldinn var í Háskóla Íslands á dögunum.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð og Háskóli Íslands standa að Hvatningarverðlaunum jafnréttismála og er landsnefnd UN Women á Íslandi sérstakur samstarfsaðili.
Meðal þeirra sem fluttu erindi voru Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Stefán Sigurðsson, forstjóri Sýnar, sem fékk verðlaunin árið 2017 undir merkjum Vodafone.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, stýrði fundinum.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sagafilm þakkaði fyrir verðlaunin en bakvið hann stendur Hrönn Þorsteinsdóttir, fjármala- og starfsmannastjóri Sagafilm.
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.
Ásta Jóhannsdóttir, nýdoktor á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands, var á meðal ræðumanna á fundinum.
Magnús Orri Schram flutti erindi á fundinum.
Stefán Sigurðsson forstjóri Sýnar.
Fundurinn var vel sóttur og líflegur.
Davíð Þorláksson forstöðumaður samkeppnishæfnissviðs Samtaka atvinnulífsins.
Svanhildur Konráðsdóttir forstjóri tónlistar- og ráðstefnuhallarinnar Hörpu.
Sigríður Ásdís Snævarr, fyrsti kvenkyns sendiherra Íslands, en hún er jafnframt eiginkona Kjartans Gunnarssonar fyrrum framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins.
Þórey Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi Capacent og fyrrum aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þegar hún var í stóli innanríkisráðherra.
Elísabet Brynjarsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.