„Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað að nýju í stýrinefnd um losun fjármagnshafta, en nefndin er undir forsæti fjármála- og efnahagsráðherra," segir í frétt ráðuneytisins um málið.

„Nýskipuð nefnd kom saman til fyrsta fundar í dag en verkefni hennar er að vinna að fullri losun fjármagnshafta með þeim hætti að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar á sama tíma og gætt sé að fjármálastöðugleika og stöðugleika í gengis- og peningamálum.“

Í nefndinni sitja:

  • Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra
  • Benedikt Árnason, tilnefndur af forsætisráðherra
  • Guðmundur Árnason, tilnefndur af fjármála- og efnahagsráðherra
  • Már Guðmundsson, seðlabankastjóri
  • Ragnhildur Arnljótsdóttir, tilnefnd af forsætisráðuneyti