Hugverkaráð Samtaka iðnaðarins var stofnað í gær en í ráðinu sitja 15 manns. Þessu nýja ráði er ætlað að styrkja þau málefni sem eru sameiginleg fyrirtækjum sem starfa á alþjóðamörkuðum og byggja afurðir sínar og þjónustu á tækni og hugverki.

Í tilkynningu frá Samtökunum segir að miklar breytingar hafi orðið á hugverkaiðnaðinum og mikill vöxtur hafi einkennt starfsemi þeirra fyrirtækja sem tilheyra þessum iðnaði.

Áætlað verðmæti útflutnings annars iðnaðar og þjónustu er 289 milljarðar króna á síðasta ári og hefur vaxið um 81% frá árinu 2009 þegar verðmætið var 161 milljarður króna. Hlutfall þessa iðnaðar hefur vaxið og er nú 24% af heildargjaldeyristekjum þjóðarinnar sem er álíka mikið og það sem sjávar- og landbúnaðarafurðir skapa.

Stofnun Hugverkaráðs SI er liður í því að efla samkeppnishæfni hugverka- og tæknifyrirtækja á Íslandi þar sem stefnt er að því að skapað verði rekstrarumhverfi sem jafnast á við það sem best gerist á alþjóðlegum vettvangi.

Á stofnfundinum voru lagðar línur fyrir starf ráðsins á næstu misserum þar sem kom fram mikilvægi þess fyrir framtíð og vöxt íslenska hagkerfisins að iðnaðurinn vinni markvisst að lykilmálefnum til að ná þeim árangri sem að er stefnt.