EFLA verkfræðistofa og Þróunarsamvinnustofnun Íslands hafa undirritað samstarfssamning um verkefni tengd jarðhita í Kenía. Í tilkynningu segir að verkefnið feli í sér að endurskoða hugmyndalíkan af Suswa jarðhitasvæðinu í Kenía, ákvarða staðsetningar á tilraunaborholum sem og að aðstoða og þjálfa starfsmenn Geothermal Development Company við mælingar og smíði hugmyndalíkans fyrir jarðhitasvæði.

þar segir jafnframt að verkefnið sé einn þáttur í áætlun Þróunarsamvinnustofnunarinnar um þróun jarðhita og uppbyggingu þekkingar á sviði jarðhitanýtingar í Austur Afríku. Verkefnið er fjármagnað í sameiningu af Þróunarsamvinnustofnun og Norræna Þróunarsjóðinum.

EFLA var hlutskörpust í alþjóðlegu útboði um verkið og hefst vinna við það nú í júní. Suswa jarðhitasvæðið er staðsett í Great Rift dalnum um 100 km frá Nairobi, höfuðborg Kenía. Svæðið er í yfir 2.000 metra hæð og er talið geta staðið undir allt að 600 MW orkuframleiðslu, að því er segir í tilkynningunni.