Einstaklings- og fyrirtækjasvið Sýnar verða rekin sem sjálfstæð svið undir sölu og þjónustu samkvæmt nýju skipulagi sem tilkynnt var um rétt í þessu.

Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur verið ráðinn til að stýra einstaklingssviði, og Trausti Guðmundsson mun leiða fyrirtækjahlutann. Sala og þjónusta í heild mun heyra beint undir forstjóra. Ragnheiður Hauksdóttir, fráfarandi forstöðumaður einstaklingssviðs, mun láta af störfum.

Þá lætur Björn Víglundsson af störfum sem framkvæmdastjóri Miðla, sem einnig munu nú heyra beint undir forstjóra. Loks tekur Þorvarður Sveinsson, sem áður leiddi fyrirtækjasvið, við nýju hlutverki rekstrarstjóra, sem mun bera ábyrgð á rekstrarmálum þvert á fyrirtækið.

Tilkynningin í heild:

Skipulagsbreytingar hjá Sýn hf.

Gerðar hafa verið breytingar hjá Sýn hf. sem er ætlað er að efla sölu og þjónustu og styrkja rekstur Sýnar fram á veginn og eru liður í að einfalda rekstur félagsins og stytta boðleiðir.

Einstaklingssvið og fyrirtækjasvið verða rekin sem tvö sjálfstæð svið undir sölu og þjónustu, þar sem Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur verið ráðinn til að leiða sölu og þjónustu einstaklinga, og Trausti Guðmundsson mun leiða fyrirtækjahlutann. Sala og þjónusta mun heyra beint undir forstjóra. Ragnheiður Hauksdóttir sem leitt hefur einstaklingssvið Sýnar hefur gert samkomulag um að láta að störfum í kjölfar skipulagsbreytinga.

Einingar Miðla heyra beint undir forstjóra eftir þessa breytingu en munu að öðru leyti ekki breytast. Björn Víglundsson sem leitt hefur Miðla hefur einnig gert samkomulag um starfslok við þessar breytingar. Birni og Ragnheiði er þakkað fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og mikilvægt framlag í gegnum árin.

Þorvarður Sveinsson sem leitt hefur fyrirtækjasvið tekur við nýju hlutverki rekstrarstjóra. Hann mun bera ábyrgð á rekstrarmálum þvert á fyrirtækið með það markmið að ná fram aukinni skilvirkni og hagkvæmni í rekstri. Þessi breyting endurspeglar rekstraráherslur félagsins og viðbrögð við áskorunum á fjarskipta- og fjölmiðlamarkaði.

Verkefni félagsins verða eftir breytingar rekin í þremur stoðum; það er Sölu og þjónustu, Miðlum og svo Tækni, Fjármálum og Rekstri.

Um Elmar Hallgríms Hallgrímsson nýjan stjórnanda einstaklingssviðs

Elmar Hallgríms Hallgrímsson hefur verið ráðinn stjórnandi einstaklingssviðs, en þar fellur undir sala og þjónusta til einstaklinga sem og markaðsmál. Elmar hefur undanfarið sinnt sérverkefnum fyrir Hagvang en var áður framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs hjá 365 miðlum ehf. Elmar var um árabil lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og annast nú m.a. kennslu við MBA nám og lagadeild skólans. Hann er einnig þjálfari hjá Dale Carnegie.

Elmar er með LL.M gráðu frá University of Pennsylvania og embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur lokið meistaranámi í fjármálum fyrirtækja og í viðskiptasiðfræði frá Háskóla Íslands, auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfasviðskiptum og hafa leyfi til að starfa sem héraðsdómslögmaður.

Elmar hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu og var m.a. stjórnarformaður MBA náms og viðskiptafræðistofnunar Háskóla Íslands. Þá hefur Elmar m.a. setið í stjórn Samkeppniseftirlitsins, LÍN og ýmissa lífeyrissjóða.