Héraðsdómur Reykjaness veitti í dag stjórn Sameinaðs Silicons ehf. heimild til greiðslustöðvunar sem miðar að því að ná bindandi nauðasamningum við lánadrottna. Ástæðan eru erfiðleikar í rekstri kísilmálmverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík sem rekja má til síendurtekinna bilana í búnaði sem valdið hafa félaginu miklu tjóni. Vegna þessara rekstrarerfiðleika var fyrirsjáanlegt að félagið myndi að óbreyttu eiga erfitt með að standa í skilum við lánardrottna og yfirvofandi eru aðgerðir einstakra kröfuhafa ef ekki verður brugðist við án tafar. Nýfallinn gerðardómur í deilu félagsins við ÍAV eykur enn á þessa óvissu en samningar um uppgjör þeirra skulda sem þar var tekist á um hafa ekki borið árangur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Eins og áður hefur verið fjallað um krefst verktakafyrirtækið ÍAV ríflega eins milljarða króna auk dráttarvaxta frá United Silicon fyrir gerðardómi vegna ógreiddra reikninga og annarra meintra vanefnda kísilversins í Helguvík. ÍAV var aðalverktaki kísilversins en starfsmenn fyrirtækisins lögðu niður störf í Helguvík í júlí í fyrra. Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, boðaði þá að meintar vanefndir United Silicon færu fyrir gerðardóm.

Enn frekari endurbætur nauðsynlegar

„Hluthafar hafa frá því verksmiðjan tók til starfa lagt félaginu til viðbótarhlutafé til að fjármagna reksturinn og endurbætur á búnaði og almennri aðstöðu fyrir starfsfólk. Ljóst er að enn frekari endurbætur á búnaði og aðstöðu eru nauðsynlegar til að verksmiðjan geti framleitt afurðir í því magni og af þeim gæðum sem áætlað var í upphafi og án þeirrar lyktarmengunar sem íbúar í nágrenninu hafa kvartað undan.

Það er mat stjórnar félagsins að með greiðslustöðvun megi skapa ráðrúm til að grípa til þeirra ráðstafana sem nauðsynlegar eru til að koma rekstri verksmiðjunnar í eðlilegt horf. Markaðshorfur fyrir afurðir verksmiðjunnar eru góðar og verð hefur farið hækkandi. Framtíðarhorfur eru því vænlegar að því tilskyldu að unnt verði að afla aukins fjármagns, semja við lánardrottna og endurskipuleggja reksturinn. Nauðsynlegt var að fá heimild til greiðslustöðvunar til að freista þess að rétta við rekstur félagsins og ná samningum og samstarfi við lánardrottna með það að markmiði að ná bindandi nauðasamningum.

Stjórn félagsins tekur alvarlega þá ábyrgð sem fylgir því að reka stórt fyrirtæki með mikinn fjölda starfsmanna sem skapar tekjur fyrir nærsamfélagið. Nauðasamningar eru besta leiðin til að verja þau störf og tryggja að hægt sé að halda uppbyggingu starfseminnar áfram á þann veg að fyrirtækið geti starfað í samræmi við starfsleyfi og í góðri sátt við umhverfið,“ segir í tilkynningunni.