Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,29% og er 7.261 stig við hádegi, samkvæmt upplýsingum frá M5. Veltan nemur 6.788 milljónum króna.

FL Group hefur hækkað um 2,01%, Össur hefur hækkað um 0,94%, Atorka Group hefur hækkað um 0,91%, Actavis Group hefur hækkað um 0,57% og Straumur-Burðarás hefur hækkað um 0,52%.

Icelandic Group hefur lækkað um 0,68% og Bakkavör Group hefur lækkað um 0,3%.

Gengi krónu hefur styrkst um 0,13% og er 121,4 stig.