Félagið Emoll ehf., sem rak vefverslanirnar bútík.is og Mona.is, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í janúar á þessu ári var bókfærður 14,5 milljóna króna söluhagnaður af sölu á Emoll frá Vefpressunni ehf. í ársreikningi Vefpressunnar fyrir árið 2011. Emoll ehf. hafði áður verið metið á tæpar 5,5 milljónir í bókum Vefpressunnar og var félagið því selt á um 20 milljónir árið 2011. Bútík.is seldi ýmsan varning tengdan tísku, hönnun og heilsu en Mona.is var vefverslun sem seldi ýmis hjálpartæki ástarlífsins.

Björn Ingi Hrafnsson, einn eigenda Vefpressunnar, segir í samtali við Viðskiptablaðið að félagið hafi verið selt til félagsins Verslanir ehf, sem áður hét Hlaupaskór ehf. Hlaupaskór var stofnað af Vigni Má Lýðssyni og Hafsteini Birgi Einarssyni árið 2010. Samnefnd vefverslun fyrir íþróttavörur var rekin af þess hálfu þar til Emoll ehf, félag Björns Inga, keypti alla hluti Hlaupaskós þann 18. apríl 2012, samkvæmt upplýsingum frá Reyni Svavari Eiríkssyni, lögfræðingi þeirra  Vignis og Hafsteins. Eftir það var skipt um nafn á félaginu og varð Björn Ingi stjórnarformaður félagsins. Í yfirlýsingu, sem Reynir sendi frá sér vegna málsins, segir að Vignir og Hafsteinn hafi ekki komið nálægt sölu Emoll ehf. til félagsins Verslanir ehf. né rekstri þeirra félaga að öðru leyti.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum tölublöð.