Ákvörðun umhverfisráðherra um að afturkalla ákvörðun um Suðvesturlínu er bein hömlun á framkvæmdir í Helguvík, á meðan fjármálaráðherra felur sig á bak við orku- og auðlindaskatta til þess eins að hindra þær.

Þetta kemur fram í ályktun Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ sem samþykkt var á aðalfundi félagsins í gær. Í ályktuninni lýsir félagið yfir miklum vonbrigðum með störf ríkisstjórnarinnar í þágu endurreisnar og atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum.

„Á tímum harðræðis og kreppu á það að vera markmið sérhverrar ríkisstjórnar að blása lífi og von í þjóð sína en ekki ala á vonleysi og sundrungu,“ segir í ályktun félagsins.

„Hér á Suðurnesjum hafa heimamenn lagt gríðarlega vinnu í að skapa fjölbreytt og arðbær atvinnutækifæri fyrir samfélagið. Það eru því mikil vonbrigði að ríkisstjórnin sjái leik í því að leggja stein í götu þeirra verkefna með beinum og óbeinum hætti.“

Félagið segir vinnubrögð sem þessi vera með öllu óásættanleg, sérstaklega í ljósi bágrar stöðu þjóðarbúsins og fjölda atvinnulausra.

„Að þessar ákvarðanir séu teknar undir verndarvæng Samfylkingarinnar sýnir best að sá flokkur stendur aðeins með atvinnusköpun í orði en ekki á borði,“ segir loks í ályktun félagsins.