Joe Lynam, viðskiptablaðamaður BBC, segir á Twitter síðu sinni að hollensk stjórnvöl virðist ekki vilja endursemja um Icesave við Íslendinga. Á vefsíðunni PorexPros.com kemur fram að Hollendingar telji tíma til samningaviðræðna sé liðinn. Þetta sé innanríkismál sem íslensk stjórnvöl verði að vinna úr og segir talsmaður fjármálaráðuneytisins vonast til að heyra frá íslenskum stjórnvöldum fljótt.

Samkvæmt Lynam þá er viðhorf William Hague og bresku ríkisstjórnarinnar svipað. Þetta sé innanríkismál sem íslensk stjórnvöld verði að leysa.'