Samkeppnieftirlitið (SKE) hefur hafið formlega rannsókn gagnvart Landsvirkjun. Til skoðunar er hvort tiltekin ákvæði í samningum Landsvirkjunar við stórnotendur standist ákvæði samkeppnislaga og samkeppnisreglur EES-samningsins.

„Um er að ræða ákvæði í samningum Landsvirkjunar við stórnotendur sem kveða á um að þeim sé ekki heimilt að selja frá sér ónýtta raforku aftur inn á kerfið,“ segir í tilkynningu á vef Samkeppniseftirlitsins.

Eftirlitið segir að takmarkanir af þessu tagi „af hálfu markaðsráðandi fyrirtækis“ geti falið í sér brot á banni við misnotkun á markaðsráðandi stöðu skv. 11. gr. samkeppnislaga og 54. gr. EES-samningsins.

„Þannig geta slík samningsákvæði verið til þess fallin að verja eða styrkja stöðu hins markaðsráðandi fyrirtækis á kostnað viðskiptavina og almennings.“

Í samkeppnismálum erlendis hafi slík endursölubönn markaðsráðandi raforkufyrirtækja verið talin draga úr skilvirkni heildsölumarkaða með rafmagn sem leiðir til minni samkeppni og raforkuöryggis, að því er segir í tilkynningunni. Brjóti samningsákvæði í bága við samkeppnislög teljast þau ógild, samanber ákvæðum samkeppnislaga.

Málið hófst með bréfi SKE til Landsvirkjunar þann 23. nóvember 2023, þar sem óskað var eftir upplýsingum frá Landsvirkjun um umrædd ákvæði. Í kjölfarið var Landsvirkjun tilkynnt með bréfi á föstudaginn síðasta um að SKE hefði ákveðið að taka umrædd ákvæði, og samkeppnisleg áhrif þeirra, til rannsóknar.

SKE áréttar að tilkynning um upphaf máls sé liður í málsmeðferð eftirlitsins en í henni felst hvorki endanleg afstaða til mögulegra brota né vísbending um mögulega niðurstöðu rannsóknarinnar. Rannsókn málsins er á fyrstu stigum.

Upplýsa ESA um opnun málsins

Samkeppniseftirlitið hefur upplýst Eftirlitsstofnun EFTA (ESA), um opnun málsins í samræmi við þær skyldur sem hvíla á samkeppnisyfirvöldum á EES-svæðinu.

Fram kemur að ESA hafi í eldri málum ekki lagt mat á hvort samningar Landsvirkjunar við stórnotendur innihaldi ákvæði sem brjóti gegn samkeppnisreglum EES-samningsins.