Stundin sem var stofnuð í febrúar 2015 skoðar að tvöfalda útgáfu sína og gefa út blaðið tvisvar sinnum í mánuði. Jón Trausti Reynisson, ritstjóri og framkvæmdastjóri Stundarinnar, segir að miðillinn hyggist færa út kvíarnar á næstunni.

„Við erum ekki að velta fyrir okkur hvort við ætlum að stækka við okkur heldur hvernig,“ segir Jón. „Það er til skoðunar hjá okkur hvort við munum vera með tvö blöð í mánuði. Það myndi þá gerast frekar fljótlega,“ bætir hann við.