Greint er frá því á facebook síðu Félags íslenskra rafvirkja að félagið telji að segja eigi upp samningum á fundi samninganefndar sem fram fer í dag á Hótel Nordica eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá . Skrifar Borgþór Hjörvarsson formaður félagsins undir færsluna.

Formaður Rafiðnaðarsambandsins, Kristján Þórður Snæbjörnssonn, segir á heimasíðu félagsins að litlu skipti hvað stjórnvöld muni leggja á borðið, það muni varla koma til að hafa áhrif á afstöðu formanna til uppsagnar.

Loks samþykkti stjórn og trúnaðarráð VR  á fundi sínum í gærkvöldi eftirfarandi ályktun, en Ragnar Þór Ingólfsson er formaður félagsins:

Fundur stjórnar- og trúnaðarráðs VR sem haldinn var þriðjudaginn 27. febrúar 2018 lítur svo á að forsendur kjarasamninga séu brostnar og að öllu óbreyttu beri að segja þeim upp. Augljóst má vera að aðrir launahópar hafa fengið launahækkanir sem eru umfram þær hækkanir sem félagar í VR hafa fengið á viðmiðunartímabili gildandi kjarasamninga.

Fundurinn krefst þess að kjarasamningar verði endurskoðaðir þannig að forsenduákvæði haldi, ella komi til uppsagnar og er formanni VR veitt fullt umboð fundarins til þess að meta slíkt ef tilboð er lagt á borð samninganefndar miðvikudaginn 28. febrúar 2018.

Komi ekkert ásættanlegt tilboð sem rétt getur af þann forsendubrest sem orðið hefur leggur trúnaðarráð VR til að samningum verði sagt upp áður en að frestur til þess rennur út og þá verði krafa okkar í viðræðum sú að laun hækki í samræmi við ákvörðun Kjararáðs um hækkun þingmanna og æðstu embættismanna ríkisins.

Hér má lesa frekari fréttir um málefni tengdum núverandi formanni VR:

Hér má lesa skoðanapistla um núverandi formann VR: