Styrmir Sigurjónsson, framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Arion banka, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá bankanum, að því er kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallarinnar. Styrmir mun gegna starfinu þar til nýr aðili tekur við af honum.

Styrmir hefur verið framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs og setið í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2020. Hann kom til Arion frá Natera í Bandaríkjunum, skráðs fyrirtækis sem sérhæfir sig á sviði erfðagreiningar. Styrmir starfaði hjá Natera á árunum 2009-2019, síðast sem framkvæmdastjóri rannsóknar og vöruþróunar.

Áður en Styrmir höf störf hjá Natera starfaði hann hjá Straumi fjárfestingarbanka, FL Group og fjárfestingarbanka Citi.

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka:

„Styrmir hefur leitt umfangsmiklar breytingar þegar kemur að upplýsingatæknimálum hjá Arion banka og gert það með afar farsælum hætti. Ég þakka Styrmi hans góðu störf í þágu bankans og óska honum velfarnaðar í þeim verkefnum sem hann tekst á hendur.“