Stéttarfélagið Efling afhenti í dag Samtökum atvinnulífsins kröfugerð sem „samþykkt var einróma“ á fundi samninganefndar félagsins í gær, að því er kemur fram í tilkynningu. Fyrsti samningafundur Eflingar með Samtökum atvinnulífsins er áformaður næstkomandi föstudag í Félagsheimili Eflingar.

Í kröfugerðinni er farið fram á hækkun allra mánaðarlauna um samtals 167 þúsund krónur á þriggja ára samningstíma. Hækkunin verði krónutöluhækkun sem leggist jafnt á öll laun í þrepum, að fyrirmynd Lífskjarasamninganna.

Lægsti gildandi taxti Starfsgreinasambandsins er 367.325 krónur. Sé miðað við lægstu laun má því ætla að Efling fari fram á 45,5% launahækkun yfir þriggja ára tímabil.

Samninganefndin leggur til þrjár árlegar hækkanir mánaðarlauna á samningstíma sem miða við verðbólguspá hvers árs. Sérstök framfærsluuppbót komi að auki í formi hækkunar mánaðarlauna sem nemi 30 þúsund krónum.

Kröfur Eflingar- krónutöluhækkanir mánaðarlauna

Framfærsluuppbót 30.000 kr.
Hækkun 2022 56.700 kr.
Hækkun 2023 47.700 kr.
Hækkun 2024 32.600 kr.
Samtals hækkun 167.000 kr.

Samninganefndin segist vilja gera kjarasamning til langs tíma, þó meðþeim fyrirvara um að launalið beri að endurskoða ef verðbólga fari meira en 1% yfir verðbólguspár, sem launahækkanir byggja á.

„Hækkunin tryggir aukinn kaupmátt launa sem eru undir meðallaunum miðað við núverandi verðbólgu og verðbólguspár, auk þess að verja kaupmátt meðallauna. Hluti þeirra hækkana sem krafist er snýr að því að leiðrétta það ástand að laun verka- og láglaunafólk dugi ekki til framfærslu samkvæmt opinberum viðmiðum,“ segir í tilkynningunni.

„Með hækkunum kröfugerðarinnar er hlutdeild láglaunafólks í hagvexti tryggð, og spornað gegn launaskriði í efri lögum samfélagsins.“

Samninganefnd Eflingar hefur hist á samtals fjórum fundum síðastliðna viku. Efling segir að yfir 4.500 félagar stéttarfélagsins átt þátt í mótun kröfugerðar með þátttöku sinni í kjara- og viðhorfskönnun félagsins.

„Verkefni næstu þriggja ára er skýrt í okkar huga. Við ætlum að halda áfram á þeirri braut að ná fram kjarabótum fyrir félagsfólk Eflingar. Það þarf að verja launin okkar gegn verðhækkunum á lífsnauðsynjum og það þarf að vinda ofan af hallarekstri á heimilum láglunafólks. Leið krónutöluhækkana hefur sannað sig sem besta leiðin að þessum markmiðum. Algjör eining var meðal samninganefndar Eflingarfélaga um kröfugerðina,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Leiðrétt: Miðast var við rangan taxta við útreikning á hækkun lægstu launa. Fréttin hefur verið leiðrétt.