Bjarni Askham Bjarnason, stjórnarformaður færeyska flugfélagsins Atlantic Airway, hefur sagt starfi sínu lausu. Ástæðan er sú að hann er að taka við sem fjármálaráðherra Færeyja.

Fram kemur í tilkynningu frá flugfélaginu til Kauphallarinnar, að Bjarni muni sitja í stjórninni þar til eftirmaður hans sest í stólinn.

Hutabréf Atlantic Airways voru skráð í Kauphöllina haustið 2007 og var um tíma hluti af Úrvalsvísitölunni.