Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu og samninganefnd þess ákvað á fundi sínum í dag að vísa viðræðum um endurnýjun kjarasamninga Sameykis og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til ríkissáttasemjara.

„Samningsaðilar hafa fundað í kjaradeilunni síðan í febrúar og telja fulltrúar samninganefndar Sameykis fullreynt að ná samkomulagi milli aðila án milligöngu ríkissáttasemjara,“ segir í tilkynningu Sameykis.

Stéttarfélagið lagði fram kröfugerð í febrúar síðastliðnum. Félagsfólk sem samið verður fyrir telur um 4.500 sem starfa hjá ríkinu.