Eyjólfur Árni Rafnsson gefur áfram kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins en hann tók við formennsku árið 2017. Rafræn kosning fyrir starfsárið 2019-2020 hefst í vikunni meðal aðildarfyrirtækja SA.

„Þann  tíma sem ég hef sinnt formennsku í Samtökum atvinnulífsins hefur veruleg vinna farið fram milli aðila vinnumarkaðarins um leiðir til að skapa atvinnulífinu fyrirsjáanleg og góð starfsskilyrði,“ segir Eyjólfur Árni.

„Það er forsenda þess að hægt sé að leggja grunn að enn betri lífskjörum landsmanna til framtíðar. Vaxandi órói á vinnumarkaði og verkfallsátök geta hins vegar orðið til þess að það þrengi að heimilum og fyrirtækjum næstu misserin. Það vill enginn. Aðstæður í efnahagslífinu hafa gjörbreyst á innan við ári og eru mjög viðkvæmar. Með réttum ákvörðunum má halda áfram að bæta lífskjör fólks og hag fyrirtækja.“