Gylfi Sigfússon sem gengt hefur starfi forstjóra Eimskip frá árinu 2008 mun láta af störfum um næstkomandi áramót. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Eimskip sendi til kauphallarinnar á ellefta tímanum í kvöld. Gylfi mun þó ekki láta af störfum hjá félaginu því hann mun frá og með áramótum stýra daglegum rekstri Eimskips í Bandaríkjunum og Kanada, ásamt flutningsmiðlunarfyrirtækinu Eimskip Logistics.

Samkvæmt tilkynningunni mun stjórn félagsins setja af stað ráðningarferli til að ráða nýjan forstjóra.

Í tilkynningunni segir Balvin Þorsteinsson, stjórnarformaður Eimskips:

„Gylfi Sigfússon á að baki farsælan starfsferil hjá Eimskipafélagi Íslands sem spannar um 28 ár en hann tók við stöðu forstjóra í maí 2008 er hann var beðinn um að leiða fyrirtækið í gegnum krefjandi endurskipulagningu. Áður en Gylfi tók við sem forstjóri félagsins var hann framkvæmdastjóri Eimskips í Bandaríkjunum, Kanada og Eimskip Logistics, en hann mun frá og með 1. janúar 2019 taka aftur við daglegum rekstri og flytjast til Bandaríkjanna.

Gylfi tók við starfi forstjóra fyrir tíu árum og leiddi Eimskip í gegnum miklar áskoranir í efnahagslífinu og í gegnum fjárhags- og rekstarlega endurskipulagningu. Verkefnið var ekki aðeins mikilvægt fyrir Eimskip heldur einnig fyrir hagsmuni Íslands; að tryggja óhefta flutninga til og frá landinu á erfiðum tímum, treysta rekstrargrundvöll heima og erlendis, auk þess sem hann stýrði félaginu til nýrrar framtíðar með dugmiklu og samstilltu starfsfólki. Vinnan við endurskipulagninguna tókst vel og félagið stendur sterkt eftir. Markmiðið er að byggja reksturinn áfram á þeim grunni sem lagður var undir stjórn Gylfa. Fyrir hönd stjórnar félagsins færi ég honum þakkir fyrir hans góða starf og óska honum velfarnaðar vestanhafs þar sem hann mun leiða uppbyggingarstarf félagsins í Norður-Ameríku.“

Þá er haft eftir Gylfa fráfarandi forstjóra:

„Mér er efst í huga þakklæti til þeirra fjölmörgu stjórnarmanna, stjórnenda og starfsmanna sem og viðskiptavina félagsins sem mér auðnaðist að vinna með á þessum tíma. Þessir aðilar settu allt sitt á vogarskálarnar til að koma Eimskip aftur á skrið. Rekstrar- og fjárhagsleg endurskipulagning félagsins reyndi mikið á starfsfólk en uppskeran var góð og nú siglir félagið inn í bjarta og spennandi tíma. Ég mun stýra frekari uppbyggingu félagsins í Norður-Ameríku, en vikuleg siglingaáætlun til og frá Norður-Ameríku sem kynnt var á síðasta ári er hornsteinn þjónustunnar. Ég óska félaginu, stjórn, starfsmönnum og viðskiptavinum alls hins besta á komandi árum.“