Faxaflóahafnir leigja út rými við Grandagarð þar sem fjölbreytt starfsemi fer fram. Vinnustofurnar eiga það þó allar sameiginlegt að þar mega gestir og gangandi líta við. Það hefur því færst mikið líf í fyrrum verbúðirnar, ekki síst eftir að ferðamönnum fjölgaði í miðborginni.