Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play, mun láta af störfum hjá flugfélaginu að eigin ósk, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Ólafur mun gegna stöðunni áfram þar til eftirmaður hans tekur við.

Ólafur tók við stöðunni í byrjun nóvember 2022 af Þóru Eggertsdóttur. Hann hafði áður starfað hjá Skel fjárfestingarfélagi og forvera þess frá árinu 2019, síðast sem forstjóri.

„Eftir farsæla fjármögnunarlotu tel ég réttan tímapunkt fyrir mig persónulega að stíga til hliðar og snúa mér að öðrum viðfangsefnum. Ég vil nota tækifærið og óska Play og starfsfólkinu alls hins besta og hlakka til að fylgjast með því vaxa og dafna í framtíðinni,“ er haft eftir Ólafi Þór í tilkynningunni.

„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að vera hluti af stórskemmtilegri Play vegferð.“

Play lauk nýverið 4,6 milljarða króna hlutafjáraukningu. Flugfélagið birti uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung á miðvikudaginn.

„Ólafur hefur reynst góður liðsmaður á þeim tíma sem hann hefur verið hjá félaginu. Hann var lykilmaður í gegnum mikilvæga fjármögnunarlotu félagsins á fyrsta ársfjórðungi og kveður nú félagið í góðri stöðu til framtíðar. Ég þakka Ólafi fyrir farsælt samstarf og óska honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play.