„Þann 31. ágúst sl. var tilkynnt um fyrirhuguð kaup Fjarskipta á eignum og rekstri ljósvakamiðla og fjarskiptaþjónustu 365 miðla, með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakönnunar sem nú er á lokastigi,“ segir í fréttatilkynningu frá Fjarskiptum, móðurfélagi Vodafone.

„Aðilar hafa náð nýju samkomulagi um kaupverð á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga úr fyrrgreindri áreiðanleikakönnun og áframhald einkaviðræðna.

Kaupverð miðast við EBITDA 365

Það er mat aðila að hagnaður Fjarskipta fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) af ljósvaka- og fjarskiptastarfsemi 365 miðla, að viðbættum samlegðaráhrifum, geti numið u.þ.b. 1.600 milljónum króna á ársgrundvelli auk annarra jákvæðra áhrifa á frjálst sjóðsflæði Fjarskipta.

Kaupverð miðað við framangreint verður 2.200 milljónir króna sem verða greiddar annars vegar með 32.380.952 hlutum í Fjarskiptum á genginu 52,50 kr. á hlut, og hins vegar 500 milljónum króna með reiðufé.

Einnig yfirtaka Fjarskipti vaxtaberandi skuldir að fjárhæð 4,6 milljörðum króna. Kaupin eru enn háð skilyrðum og forsendum sem útfærð verða nánar í kaupsamningi aðila.

Ofangreint samkomulag um breytt kaupverð greiðir fyrir kaupsamningsgerð, sem stefnt er að því að ljúki á fyrstu vikum nýs árs.

Áfram er því ráðgert að ganga frá kaupunum um mitt ár 2017, að fengnu samþykki viðkomandi eftirlits- og hagsmunaaðila. Nánar verður gert grein fyrir forsendum viðskiptanna þegar kaupsamningur liggur fyrir.“