Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra hefur skipað nýja stjórn Sjúkratrygginga Íslands til næstu fjögurra ára, að því er fram kemur á vef Velferðarráðuneytisins.
Björn Zoega, bæklunarskurðlæknir og fyrrum forstjóri Landspítalans, er nýr formaður.
Í tilkynningu er haft eftir Kristjáni Þór Júlíussyni að hann vænti góðs samstarfs við nýja stjórn. Hann segir jafnframt að reynsla og þekking Björns Zoega á íslensku heilbrigðiskerfi muni vafalítið koma öllum landsmönnum til góða.
Stjórnin er þannig skipuð:
-
Björn Zoega, bæklunarskurðlæknir, formaður
Varamaður: Stefán Þórarinsson, læknir, -
Berglind Hallgrímsdóttir, verkfræðingur
Varamaður: Jónína Guðmundsdóttir, mannauðsráðgjafi -
Helga Tatiana Zharov, lögfræðingur
Varamaður: Guðjón Bjarni Hálfdánarson, lögfræðingur -
Guðmundur Magnússon, rekstrarverkfræðingur,
Varamaður: Vífill Karlsson, hagfræðingur -
Birna Kr. Svavarsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Varamaður: Valgerður Sveinsdóttir,lyfjafræðingur