Flugeldafélag Spaugstofumanns lýst gjaldþrota Félagið Bomba.is ehf., sem var í helmingseigu Arnar Árnasonar leikara, var samkvæmt Lögbirtingablaðinu úrskurðað gjaldþrota þann 4. júlí síðastliðinn.

Örn átti Bomba.is ehf. ásamt Arnari Barðdal og hefur á undanförnum árum flutt inn flugelda. Samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir síðasta ár nam tapið rúmum 100 þúsund krónum í fyrra samanborið við 1,4 milljóna tap árið áður.

Alls seldi félagið vörur fyrir um 7,3 milljónir en rekstrargjöld voru tæplega 300 þúsundum hærri. Um síðustu áramót námu skuldir félagsins tæpum 13 milljónum og var eigið fé neikvætt um 4,6 milljónir.