Fjármálaeftirlitið hefur metið RedRiverRoad ehf. hæft til að fara með virkan eignarhlut í Íslenskum fjárfestum hf.

Hinn 23. janúar sl. komst Fjármálaeftirlitið að þeirri niðurstöðu að RedRiverRoad ehf. og Hannes Árdal, væru hæf til að fara með yfir 50% virkan eignarhlut í verðbréfafyrirtækinu Íslenskum fjárfestum hf.

Hannes Árdal segir það mikið ánægjuefni að þessi heimild sé komin frá Fjármálaeftirlitinu. „Fram undan eru spennandi tímar hjá þessu rótgróna félagi, Íslenskum fjárfestum, sem hafa verið aðilar að Kauphöllinni síðan 1997,“ segir Hannes.

„Félagið hefur að mestu einbeitt sér að miðlun fjárfestinga í erlendum verðbréfasjóðum undanfarin ár en nú hefur verið rennt frekari stoðum undir reksturinn með endurnýjun á innlendri verðbréfamiðlun þar sem við sjáum tækifæri í ört stækkandi markaði“

Karl Jóhann Ottósson framkvæmdastjóri íslenskra fjárfesta segir það hafa verið mikinn feng fyrir félagið að fá Hannes til sín á síðasta ári, en áður starfaði hann við miðlun hjá Fossum mörkuðum.

„Það er ánægjulegt að fá þessa staðfestingu frá Fjármálaeftirlitinu og ekki síður er ánægjulegt að fá öflugan aðila að félaginu sem rekið hefur verið að mestu í óbreyttri mynd frá stofnun árið 1994,“ segir Karl Jóhann.

Um Íslenska fjárfesta hf.

Íslenskir fjárfestar hf. er óháð verðbréfafyrirtæki sem sérhæfir sig í miðlun fjárfestinga í erlendum verðbréfasjóðum ásamt miðlun innlendra verðbréfa, jafnt skráðra sem óskráðra. Viðskiptavinir Íslenskra fjárfesta eru allt frá sparifjáreigendum til stærri fjárfesta, svo sem stofnanafjárfesta. Starfsstöðvar félagsins eru í Skipholti 50c.