Paul Copley, forstjóri Kaupþings segir að með sölunni á nálega 30% hlut í Arion banka, nú strax í kjölfar afnáms haftanna, séu um stærstu einstöku hlutabréfakaup í sögu Íslands að ræða.

Eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um keyptu fyrirtækin Attestor Capital LLP, Taconic Capital Advisors UK LLP, Och-Ziff Capital Management Group og Goldman Sachs International um helgina hlut í Arion banka af Kaupskilum, dótturfélagi Kaupþings.

„Við fögnum þessum áfanga á sölu á nærri 30% í Arion banka sem lækkar hlut Kaupþings í bankanum í 57,9% sem er liður í áframhaldandi viðleitni okkar að innleysa eignasafn okkar og greiða fjármuni til hluthafa Kaupþing,“ er haft eftir Paul í fréttatilkynningu.

„Með þessum viðskiptum [...] höfum við tryggt aðkomu alþjóðlegra fjárfesta að Arion banka sem hafa millilanga til langa sýn á fjárfestingu sína. Allir eru þeir fjárfestar í Kaupþingi og hafa ákveðið að endurfjárfesta á Íslandi í stað þess að fara með fé sitt úr landi, sem er sterkt merki um trú þeirra á Íslandi og þá ekki síður á Arion banka.

Taconic Capital og Och-Ziff eru tveir stærstu hluthafar Kaupþings og hafa í mörg ár tengst Íslandi með fjölbreyttum fjárfestingum. Á sama hátt er Attestor Capital stór hluthafi okkar og hefur á liðnum árum fjárfest í mörgum fjármálastofnunum í Evrópu og á meðal annars ráðandi hlut í lánastofnun í Austurríki. Þátttaka þekkts fyrirtækis á borð Goldman Sachs segir sína sögu.

Ég hlakka til að vinna með þessum félögum þegar við höldum áfram að selja hlut okkar í Arion banka, líklega í gegnum almennt hlutafjárútboð þar sem við vonumst til að geta boðið einstaklingum og félögum innanlands færi á að fjárfesta í bankanum.“

Mögulega skráð á markað

Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka segir að koma nýrra alþjóðlegra fjárfesta inn í hluthafahópinn marki upphaf nýrra tíma. „Í skoðun er að skrá félagið á markað og gangi það eftir mun eignarhald dreifast enn frekar,“ er haft eftir Hölskuldi í fréttatilkynningu.

„Við höfum lengi verið þeirrar skoðunar að það væri jákvætt fyrir bankann að fá inn í hluthafahópinn erlenda aðila. Við höfum á undanförnum árum hitt mikinn fjölda erlendra fjárfesta og skynjað áhuga þeirra á Íslandi og bankanum. Við verðum líka vör við þennan áhuga á fleiri sviðum hér á landi eins og í ferðaþjónustu og smásölu þar sem sterk alþjóðleg vörumerki sýna landinu áður óþekktan áhuga.

Það kemur okkur því ekki á óvart að þessir fjárfestar, sem hafa komið að bankanum með óbeinum hætti í nokkur ár, kjósi nú að gerast hluthafar í Arion banka með beinum hætti. Þeir þekkja bankann vel, hafa fylgst með okkar árangri og þeirri jákvæðu þróun sem hefur átt sér stað í íslensku efnahagslífi. Þeir sýna það nú að þeir trúa því að framtíð bankans sé björt.“

Um hluthafana

Taconic Capital

Taconic Capital er alþjóðlegt fyrirtæki í sérhæfðri sjóðastýringu sem var stofnað árið 1999 með eignir að virði 6 milljarða dollara í stýringu. Höfuðstöðvar þess eru í New York og skrifstofur í London og Hong Kong. Taconic Capital annast stýringu fjárfestingasjóða sem eru með seljanleika í samræmi við fjárfestinguna í Arion banka. Fjárfestar eru einkum stofnanafjárfestar, lífeyrissjóðir, styrktarsjóðir og fjársterkir einstaklingar.

Attestor Capital

Attestor Capital er fyrirtæki í sérhæfðri sjóðastýringu í Bretlandi sem starfar samkvæmt reglum og með leyfi fjármálaeftirlitsins þar í landi. Attestor Capital sér um fjárfestingar fyrir Trinity Investments Designated Activity Company. Fjárfestar eru einkum styrktarsjóðir og fjársterkir einstaklingar.

Attestor Capital er langtímafjárfestir sem fjárfestir í félögum og eignum á ýmsum sviðum og í mörgum löndum. Af fyrri viðskiptum má nefna kaup á stórum eignarhlut í fjármálastofnunum í Evrópu, þar á meðal á ráðandi hlut í lánastofnun í Austurríki (eftir samþykki eigendaskipta af Seðlabanka Evrópu) og fjárfestingu í fyrirtæki í húsnæðislánastarfsemi á Írlandi.

Och-Ziff

Och-Ziff Capital Management Group er eitt af stærstu fyrirtækjum heims á sviði sérhæfðrar eignastýringar og er virði eigna í stýringu þess um 34 milljarðar dollara. Aðalstöðvar Och-Ziff eru í New York en fyrirtækið er einnig með skrifstofur í London, Hong Kong, Mumbai, Beijing, Shanghai og Houston. Meðal fjárfesta Och-Ziff eru lífeyrissjóðir, sjóðasjóðir, stofnanir og styrktarsjóðir, fyrirtæki og aðrar stofnanir, einkabankar og fjársterkir einstaklingar.

Goldman Sachs International

Goldman Sachs veitir víðtæka fjármálaþjónustu til viðskiptavina um allan heim. Félagið var stofnað 1869 og hjá því starfa nú 34 þúsund starfsmenn í rúmlega 80 starfsstöðvum víða um heim. Goldman Sachs fjárfestir í Arion banka gegnum dótturfélag sitt ELQ Investors II Ltd.

Fyrrgreindir aðilar hafa staðfest gagnvart Kaupþingi að raunverulegir eigendur fjármuna sem fjárfestir eru í Arion banka eru allir erlendir aðilar samkvæmt skilgreiningu laga um gjaldeyrismál nr. 87/1992 með áorðnum breytingum.

Ráðgjafar

Kaupþing naut ráðgjafar Morgan Stanley, White & Case og LOGOS. Fjárfestar nutu ráðgjafar Linklaters LLP og Fjeldsted & Blöndal.