Samstæða A og B hluta Kópavogsbæjar skilaði 322 milljóna króna rekstrarafgangi á fyrri hluta ársins 2016. Hafði verið gert ráð fyrir tapi upp á 37 milljónir króna á tímabilinu, en á sama tímabili í fyrra nam rekstrartapið 128 milljónum króna.

Rekstrarniðurstaðan jákvæð um 2,4 milljarða

Fyrir fjármagnsliði, afskriftir og lífeyrisskuldbindingar var rekstarniðurstaðan jákvæð um 2,4 milljarða. Framlegðarhlutfall hennar var því um 18%, sem er innan 15-20% marka í reglum frá eftirlitsnefnd um fjármál sveitarfélaga

Hækkunin á skattgreiðslum milli ára nam 1,3 milljörðum króna, en skattgreiðslur tímabilsins námu 10 milljörðum.

Hærri skatttekjur en vænt var

Hærri skatttekjur en reiknað var með er hluti skýringarinnar auk þess sem bókuð var tekjufærsla vegna lóðaúthlutana sem ekki var á áætlun.

Laun og launatengd gjöld hækka um tæpan milljarð milli áranna fyrir tímabilið. Eignir stóðu nánast í stað en skuldir lækkuðu eilítið, fyrir samstæðuna fóru þær úr 31,4 milljörðum í 30,7 milljarða, en fyrir A hluta fóru þær úr 24,5 milljörðum í 23,9 milljarða.

Lækkun heildarskulda

„Samkvæmt uppgjörinu hafa heildarskuldir samstæðu bæjarins lækkað nettó frá áramótum um 234 milljónir þrátt fyrir að verðtryggð lán hafi hækkað á fyrri árshelmingi vegna verðbólgu og að lífeyrisskuldbindingar hafi hækkað um 195 milljónir króna,“ segir í fréttatilkynningu frá bænum.

Þar kemur einnig fram að á fyrri helmingi árs falla um 48-49% af skatttekjum ársins en á tímabilinu fellur hins vegar stærri hluti útgjaldanna hjá ákveðnum sviðum.

Gengur hraðar að lækka skuldahlutfall en áætluðu

„Reksturinn gengur vel og er í samræmi við áætlanir. Það gengur hraðar að lækka skuldahlutfall en áætlanir gerðu ráð fyrir og við erum því bjartsýn á framhaldið. En það má benda á að við höfum verið í stöðugu efnahagsumhverfi og það eru vísbendingar um að verðbólgan kunni að hækka sem myndi bitna á bæjarsjóði eins og landsmönnum öllum,“ segir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs í yfirlýsingunni.