Tekjur samskiptafyrirtækisins Farice ehf. fyrstu sex mánuði ársins 2018 voru 7,3 milljónir evra sem er 7% lækkun samanborið við sama tímabil 2017.
Tap félagsins var 2.003 þúsund evrur samanborið við 1.903 þúsund evrur árið 2017. Nettó fjárstreymi frá rekstri batnaði á tímabilinu og var 3.006 þúsund evrur samanborið við 1.936 þúsund evrur 2017. Eiginfjárhlutfall var 35,5% þann 30. júní síðastliðinn.
Forstjóri Farice er Ómar Benediktsson og skrifstofa fyrirtækisins er staðsett við Smáratorg 3 í Kópavogi.