Líftæknifyrirtækið Ísteka ehf. nýtir gjafablóð úr hryssum til framleiðslu á frjósemislyfjum til útflutnings. Félagið velti á síðasta ári tæpum 1,7 milljörðum króna og hagnaðist um 507 milljónir. Eignir félagsins nema um 1,7 milljörðum og er eiginfjárhlutfall þess um 82%. Hjá fyrirtækinu starfa um þrjátíu manns. Aðaleigandi félagsins er Hörður Kristjánsson en Arnþór Guðlaugsson er framkvæmdastjóri.

Síðasta ár gekk rekstur Ísteka sérlega vel. Velta félagsins jókst um 80% milli ára og hagnaður um 81%. „Veltan tók stórt stökk milli 2018 og 2019. Það er að hluta til vegna organísks vaxtar en erlent sérverkefni, sem við tókum að okkur og unnum í fyrra, hafði frekar mikil áhrif á niðurstöðu ársins 2019 og mun líka hafa einhver áhrif á þessu ári,“ segir Arnþór.

Horft lengra aftur er ljóst að fyrirtækið hefur vaxið hratt undanfarin ár. Fyrirtækið hagnaðist um 68 milljónir árið 2016 og hefur afkoman því ríflega sjöfaldast á fjórum árum. „Vöxturinn hefur verið organískur undanfarin tíu ár eða svo, um tíu til tuttugu prósent á ári. Við höfum vaxið með því að kaupa meira hráefni hérna innanlands og vinna úr því. Við höfum verið að stækka verksmiðjuna og fjárfesta í henni til að geta tekið við meira gjafablóði, auk þess að uppfæra alla ferla og fleira.“

Nánar má lesa um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér . Meðal annars efnis í blaðinu er:

  • Þjóðhagsspár haustsins eru bornar saman
  • Sigurvegarar Gulleggsins segja frá sigurhugmyndinni - smáforriti sem skiptir húsverkum jafnt milli heimilisfólks
  • Huginn og Muninn eru á sínum stað auk Týs, sem fjallar um reiðufé og skattskil
  • Óðinn skrifar um húsnæðismarkaðinn
  • Fréttaskýring um skuldasöfnun hins opinbera næstu árin
  • Fjallað er um yfirtökutilboð Samherja á Eimskipi - forstjóri Samherja gerir ekki ráð fyrir að félagið auki hlutdeild sína í Eimskipi í kjölfar þess
  • Gert er grein fyrir stöðu hótela á landinu og rætt við framkvæmdastjóra
  • Farið er yfir afkomu stærstu líkamsræktarstöðva landsins
  • Rætt er við nýjan framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs, Svanhildi Hólm Valsdóttur, um ferilinn og óvæntan frítíma