Björn Steinar Pálmason hefur verið ráðinn fjármála- og mannauðsstjóri Listasafns Íslands. Björn Steinar er viðskiptafræðingur og hefur lokið MBA námi frá Háskólanum í Edinborg, auk þess að hafa háskólagráðu í sagnfræði frá HÍ og alþjóðlegt próf í verkefnastjórnun.

Samkvæmt tilkynningu frá Listasafninu var Björn Steinar valinn úr hópi 50 umsækjenda um starf fjármála- og mannauðsstjóra Listasafns Íslands.

Þá segir að Björn hafi að baki 20 ára starfsreynslu sem stjórnandi. Hann hafi m.a. verið framkvæmdastjóri fjármála hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands og verið bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar á árunum 2010 til 2014.

Þá hafi hann áður verið skrifstofu- og fjármálastjóri Grundarfjarðarbæjar og Sveitarfélagsins Álftaness auk þess að hafa unnið við innri endurskoðun og reikningshald í bankakerfinu.