Glæpasaga Ragnars Jónassonar, Snjóblinda, er í efsta sæti á lista Amazon í Bretlandi yfir mest seldu rafbækurnar. Bókin komst inn á lista yfir 100 mest seldu bækur Amazon.co.uk í gær og stökk strax í efsta sæti listans í gær og trónir þar enn.

Bókin kom út á Íslandi árið 2011 en hefur verið þýdd á nokkur tungumál og var útgáfudagur á rafbókinni í bresku Amazon versluninni 20. apríl síðastliðinn. Samkvæmt Amazon kemur bókin út í kiljuformi í júní.