Slitastjórn VBS hefur, í samráði við FME, samið við verðbréfafyrirtækið Auði Capital hf. um að taka yfir rekstur eignastýringardeildar VBS, þar sem VBS er nú í slitameðferð. Samkvæmt fréttatilkynningu frá slitastjórninni mun Auður Capital hafa umsjón með eignum og þjónustu viðskiptavina eignastýringar og fjárvörslu VBS fjárfestingabanka. „Markmiðið er að tryggja hagsmuni og öryggi eigna viðskiptavina eignastýringar VBS," segir í tilkynningunni.

Auður Capital hf. er verðbréfafyrirtæki með starfsleyfi frá FME og var stofnað á árinu 2007. Auður veitir ýmsa fjárfestingatengda þjónustu, meðal annars þjónustu á sviði eignastýringar. Starfsmenn Auðar Capital munu hafa samband við alla viðskiptavini eignastýringar og fjárvörslu VBS um næstu skref að því er fram kemur í tilkynningunni sem send var fjölmiðlum.