Einar Sigurðsson, forstjóri Mjólkursamsölunnar (MS), mun láta af störfum 30. júní næstkomandi. Þetta kemur fram á Vísi.

Þar kemur fram að Einar hafi látið stjórn MS vita af þessu í gær, en hann hefur verið forstjóri félagsins frá árinu 2009.

Ástæðuna segir hann vera vegna breytinga sem verða á högum fjölskyldu hans í lok júní.