Gengi hlutabréfa Icelandair Group hækkaði um 1% í fremur litlum viðskiptum í Kauphöllinni í dag. Viðskiptin námu rétt rúmri einni milljón króna. Á sama tíma hækkaði gengi bréfa stoðtækjafyrirtækisins Össurar um 0,26% og bréf fasteignafélagsins Regins um 0,1%.

Á sama tíma lækkaði gengi bréfa Haga-samstæðunnar um 0,77%

Úrvalsvísitalan hækkaði um aðeins 0,02% og endaði hún í 991,9 stigum. Fremur lítil viðskipti voru með hlutabréf í Kauphöllinni eða rétt rúmar 83 milljónir króna.