Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,37% í dag. Gengi bréfa Össurar lækkaði um 0,96%, Eimskips um 0,91% og Marels um 0,31%. Gengi bréfa Icelandair hækkaði hins vegar um 0,45% og Haga um 0,19%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 487,3 milljónum króna og þar af var velta með bréf Icelandair 226,5 milljónir.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,16% í viðskiptum dagsins í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar hækkaði um 0,10% og sá óverðtryggði hækkaði um 0,35%. Velta á skuldabréfamarkaði í dag nam 6,2 milljörðum króna.