Gistinætur á hótelum í maí síðastliðnum voru 117.300 sem er sambærilegt við maí 2007.

Gistinóttum fækkaði á höfuðborgarsvæðinu úr 83.000 í 79.800 eða um 4%.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Gistinóttum fjölgaði umtalsvert á Suðurlandi eða rúm 26%. Gistinóttum fjölgaði einnig um rúm 4% á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða.

Fjölgun gistinátta á hótelum á Suðurlandi í maí má bæði rekja til útlendinga (33%) og Íslendinga (14%). Fækkun gistinátta á öðrum landsvæðum milli ára má eingöngu rekja til útlendinga (-2%).

Gistinóttum á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins fjölgaði um tæp 4% milli ára

Gistinætur á hótelum fyrstu fimm mánuði ársins voru 428.000 en voru 412.000 á sama tímabili árið 2007.

Fjölgun varð á Suðurlandi um rúm 20%, á höfuðborgarsvæðinu um 4% og á Norðurlandi um 2% milli ára. Gistinóttum fækkaði á öðrum landsvæðum mest á Austurlandi um 13% og á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða um tæp 8%.

Fjölgun gistinátta fyrstu fimm mánuði ársins nær eingöngu til Íslendinga, 14%. Gistinætur útlendinga standa í stað á milli ára.