Hlutabréf hækkuðu í Evrópu í dag eftir hafa lækkað sex daga í röð og voru það helst bankar og orkufyrirtæki sem leiddu hækkanir dagsins að sögn Reuters fréttastofunnar.

Eftir að hafa lækkað nokkuð síðustu daga hækkuðu bankar sem fyrr segir í dag. Þannig hækkaði RBS um 8%, BNP Paribas um 2,9%, Barclays um 3% og HBOS um 3,8% svo dæmi séu tekin.

FTSEurofirst 300 vísitalan hækkaði í dag um 0,9%.

Í Lundúnum hækkaði FTSE 100 vísitalan um 1,2%, í Amsterdam hækkaði AEX vísitalan um 0,6% og í Frankfurt hækkaði DAX vísitalan 1%.

Í París hækkaði CAC 40 vísitalan um 0,2% og í Sviss hækkaði SMI vísitalan um 0,8%.

Í´Kaupmannahöfn stóð OMXC vísitalan í stað en í Osló hækkaði OBX vísitalan um 1,5% og í Stokkhólmi hækkaði OMXS vísitalan um 1%.